''HAUTE ROUTE'' TRÖLLANNA - ÞVERUN TRÖLLASKAGA - 6 DAGA FERÐ
Þú þarft ekki að fara alla leið í Alpana til að upplifa heimsklassa fjallskíðatúr, því að á Tröllaskaganum bíður þín verðugt verkefni í anda hinna frægu ''Haute Route'' eða ''Háu Leiða'' Alpanna. Í þessari einstöku ferð eru margar af bestu brekkum Tröllaskagans skíðaðar og hæstu tindar þveraðir á milli þess sem við gistum í þægilegum fjallaskálum í hjarta þessa stórbrotna svæðis. Vertu meðal þeirra fyrstu til að upplifa þessa frábæru ferð þar sem ótroðnar slóðir utan hinna almennu svæða eru í forgrunni.
Dagsetningar & Verð
6 daGA
FERð xxx.xxx kr
innifalið
- Akstur til og frá Akureyri í upphafi og við lok ferðar
- Gisting í fjallaskálum í 5 nætur
- Akstur á meðan á ferðinni stendur þegar á þarf að halda.
- Allur matur frá hádegisverði á fyrsta degi til hádegisverðar á síðasta degi
- Leiðsögn einu faglærðu fjallaleiðsögumanna landsins
- Samskipta og björgunarbúnaður ( Þetta á ekki við um snjóflóðaýlir, skóflu og stöng)
Ekki innifalið
- Leiga á útbúnaði
- Áfengir drykkir
- Slysa- og ferðatryggingar
Ferðaáætlun
-
DAGUR 1
Við hittumst klukkan 08:00 á Akureyri Backpackers, snæðum morgunverð saman og förum yfir áætlun dagsins og útbúnað. Við mælum með að fólk gisti á ,eða í nágrenni við, Backpackers nóttina fyrir ferð. Eftir staðgóðan morgunverð keyrum við í norðurátt og hefjum ferðina á því að skíða í um þrjá tíma í fyrsta skála ferðarinnar þar sem við munum gista í tvær nætur. Þegar þangað er komið gefst kostur á frábærri skíðun með léttan poka í nágrenninu og svo staðgóður kvöldverður sem við sameinumst um að útbúa.
-
DAGUR 4
Við byrgjum okkur upp af vistum fyrir næsta hluta ferðarinnar og tökum stefnuna í næsta skála þangað sem við komum eftir um þriggja tíma göngu, köstum af okkur birgðunum og tökum létta bunu.
-
DAGUR 2
Við skíðum allan daginn með létta dagpoka og það er af nægu að taka, brekkur í boði af öllum stærðum og gerðum. Eftir góðan dag á skíðum er ekkert eins gott og að komast í skálann og njóta kvöldsins í fjallakyrrðinni fjarri mannabyggðum.
-
DAGUR 5
Hér erum við svo sannarlega í fjallaparadís og möguleikarnir á heimsklassa fjallaskíðun óendanlegir. Þar sem við gistum aðra nótt í sama skála eru pokarnir léttir og við njótum til hins ýtrasta hverrar ferðarinnar á fætur annarrar.
-
DAGUR 3
Þessi dagur er sá lengsti hvað varðar vegalengd þar sem við munum þvera heilan fjallgarð og koma niður í næsta dal þar sem nýr skáli bíður okkar. Það má gera ráð fyrir allt að 1000 metra uppferð en jafnframt enn lengri brekku niður hinumegin þar sem við þverum nokkra af hæstu tindum Tröllaskagans.
-
DAGUR 6
Einhverntíma verða öll ævintýri að enda, en þó ekki fyrr en síðustu fallmetrarnir hafa verið skíðaðir og síðasti tindur vikunnar sigraður. Eftir góða skíðun um morguninn pökkum við saman og skíðum til byggða, þaðan sem bílferð til Akureyrar bíður. Áætluð koma til Akureyrar er seinnipart dags, nógu tímanlega til að ná flugi suður eða njóta kvöldsins í höfuðstað Norðurlands.
Útbúnaðarlisti
FATNAÐUR
- Vind og vatnsheldur jakki með öndun (Gore Tex eða sambærilegt)
- Vind og vatnsheldar buxur (Gore Tex eða sambærilegt)
- Soft Shell eða flís jakki (Valkvætt)
- Soft Shell buxur (Valkvætt)
- Nærföt síðar/langerma (ull eða gerfiefni)
- Léttur dún eða fíber jakki
- Flís- eða ullarpeysa
- Hanskar (2 pör, þykkir, þunnir)
- Skíðasokkar (ull eða gerviefni)
- Húfa
- Inniskór (Valkvætt)
SMÁHLUTIR
- Svefnpoki -10C
- Höfuðljós og auka batterí
- Sólaráburður á andlit og varir
- Sólgeraugu
- Lítil sjúkrataska (hælsærisplástrar og annað persónulegt sjúkradót)
- Varahlutir og viðgerðir – Gott er að eiga og koma með varahluti í ykkar bindingar og skó. Leiðsögumaður ber almennan viðgerðabúnað.
- Myndavél (Valkvætt)
- Tannbursti og nauðsynlegt snyrtidót
- Hleðslubanki og hleðslutæki/snúrur
SKÍÐA- OG BRETTABÚNAÐUR
- Fjallaskíðaskór / Snjóbrettaskór
- Skíði (Fjallaskíði, Telemark eða split board) Mælum með 95-120mm miðjumáli
- Skinn
- Skíðabroddar (Nauðsynlegt!!)
- Skíðastafir (Helst stillanlegir, snjóbrettafólk ætti að bera þrískipta stafi)
- Skíðastrappar – Notaðir til að festa skíði þegar borið er á bakinu
- Snjóflóðaýlir
- Snjóflóðastöng (240cm eða stærri)
- Skófla
- Bakpoki 45+ lítra með skíðafestingum
- Vatnsflaska og/eða hitabrúsi, 1-2 lítrar
- Skíðagleraugu
- Hjálmur (Valkvætt)
- Persónuleg drykkjarföng af sterkari gerðinni fyrir þá sem vilja
FYRIR OG EFTIR FERÐINA
- Sundföt og handklæði
- Föt til skiptana
- Hleðslutæki
Mælt er með því að hver og enn taki með sér sinn eigin fjallaskíðabúnað og er sérlega mikilvægt að hafa með sér sína eigin fjallaskíðaklossa.
Bergmenn bjóða upp á fjallaskíða- og snjóflóðaútbúnað til leigu á góðu verði. Um er að ræða nýjustu Völkl skíðin, Dalbello skó og Pieps snjóflóðaútbúnað. Hafðu samband og við græjum fyrir þig allt sem þarf.
Við viljum einnig benda á Fjallakofann fyrir þá sem vilja festa kaup á græjum, en þar er mesta úrval útbúnaðar og besta þekkingin á þessu sviði hér á Fróni.