UIAGM-IFMGA-IVBV-The International Federation of Mountain Guides Associations: Alþjóðasamtök fjallaleiðsögumanna UIAGM-IFMGA-IVBV eru samtök yfir 20 landa víðsvegar um heiminn sem setja reglur og viðmið um þjálfun og reynslu fjallaleiðsögumanna. Þjálfunar og prófaferlið er gríðarlega strangt og það erfiðasta og jafnframt virtasta í heiminum. Krafist er sérhæfingar á fjórum sviðum fjallamennsku. Í klettaklifri, ísklifri, fjallamennsku og fjallaskíðun. Reikna má með, að frá því að einstaklingur hefur þjálfun og þar til hann hefur lokið síðasta prófi líði um 10 ár. Ísland er ekki meðlimur í þessum samtökum og Jökull Bergmann jafnframt eini íslendingurinn sem lokið hefur UIAGM prófi.
ACMG-Association of Canadian Mountain Guides: Samtök Kanadískra fjallaleiðsögumanna eru meðlimur í UIAGM og jafnframt fyrstu samtök sinnar tegundar utan Alpalandanna sem hlutu aðild að alþjóðasamtökunum. Auk þess að útskrifa UIAGM fjallaleiðsögumenn hefur ACMG sérhæft sig á ákveðnum sviðum fjallaleiðsagnar t.d með því að útskrifa sérhæfða þyrlu og fjallaskíða leiðsögumenn þar sem að sú grein fjallaleiðsagnar er hvað mikilvægust í Kanada. ACMG leiðsögumenn starfa um víða veröld og hafa margir leiðsögumenn Bergmanna hlotið sína þjálfun þar og eru meðlimir í samtökunum.
AMGA-American Mountain Guide Association: Samtök Bandarískra fjallaleiðsögumanna eru meðlimur í UIAGM. Eins og Kanadísku samtökin sjá þau um að þjálfa og prófa leiðsögumenn sem sækjast eftir UIAGM alþjóða réttindum til fjallaleiðsagnar.
CAA-Canadian Avalanche Association: CAA eru ein virtustu samtök í heiminum í rannsóknum og kennslu í snjóflóðafræðum. Snjóflóð eru án nokkurs vafa ein stærsta hættan sem við þurfum að eiga við í ferðalögum í fjalllendi og því skilyrðislaus krafa að fjallaleiðsögumenn séu sérfræðingar í mati á snjóflóðahættu og leit í snjóflóðum. UIAGM fjallaleiðsögumenn ganga í gegnum stíft þjálfunar ferli í lágmark einn mánuð á skólabekk ásamt fleiri hundruð klukkustundum af verklegum æfingum og þjálfun áður en þeir útskrifast. Að auki þurfa allir faglærðir fjallaleiðsögumenn að taka þátt í endurmenntun á hverju ári sem gjarnan fellst í 3-6 daga æfingum í snjóflóðafræðum og öryggismálum. Frekari upplýsingar og mikinn fróðleik um allt sem tengist snjóflóðum er að finna á heimasíðu CAA.
AIMG-Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi: AIMG var stofnsett árið 2012 en eins og önnur lönd sem bjóða upp á síaukna fjallatengda afþreyingu er mikil þörf á innlendum samtökum sem huga að þeim iðnaði. AIMG stuðlar að fagmennsku, heldur uppi siðareglum, menntun og utanumhaldi með starfsréttindum félagsmanna og ver þar með almannahag þeirra sem ferðast með leiðsögumönnum á Íslandi.
WMA-Wilderness Medical Associates: Miklar kröfur eru gerðar til þeirra sem starfa sem faglærðir fjallaleiðsögumenn m.a á sviði fyrstu hjálpar. Til þess að halda gildum starfsréttindum er gerð krafa um lágmark 90 klst nám í fyrstu hjálp í óbyggðum og að upprifjun fari fram þriðja hvert ár. Þessar kröfur eru nauðsynlegar sökum þeirrar áhættu sem fylgir starfi fjallaleiðsögumanna sem oftast eru víðsfjarri sjúkrahúsum og læknisaðstoð þegar eitthvað bjátar á.